EGILSSÝNINGIN segir frá einum litríkasta persónuleika landnámsaldar, Agli Skalla-Grímssyni.

 

Atriði úr Egils sögu eru  myndgerð í tré og hefur fjöldi listamanna komið að því verki. Þeirra á meðal er Aðalheiður Eysteinsdóttir, sem meðal annars er höfundur litla Egils á myndinni, Helgi Björnsson sem endurskapaði í tré mörg eftirminnileg atvik Egilssögu, Óskar Jónasson sem setur saman áhrifríkar myndir úr hversdagslegum hlutum, Brian Pilkington sem býr til skemmtilegar ævintýrmyndir af sjóorustum Egils, Jón Adolf sem gerði guðamyndirnar og Fenrisúlf, Kaj Rune og kona hand Mona sem eiga heiðurinn af fallegu handverki lágmyndanna á sýningunni og síðast en ekki síst Sviðsmyndir sem gerðu níðstöngina, Gunnhildi og fleiri myndir undir stjórn Axels Hallkels Jóhannessonar yfirhönnuðar sýninganna.

 

Leitast er við að laða fram töfra og hið dulúðga andrúmsloft Egils sögu. Faðir Egils, Skalla-Grímur Kveld-Úlfsson, var einn af fyrstu landnámsmönnunum sem kom til Íslands, 10 árum á eftir Ingólfi Arnarsyni.

 

Í sögunni um Egil er því best og nákvæmast lýst hvernig ein ætt sest að á Íslandi. Egill var mikið skáld en líka víkingur og ribbaldi í útlöndum. Inn í söguna tvinnast bardagar og ástir, galdur og forneskja.

 

Sýningunni er komið fyrir gömlum niðurgröfnum steinkjallara Pakkhússins. Gesturinn fær leiðsögn í heyrnartólum; er leiddur í gegnum nokkurs konar völundarhús inn í ævintýraheim sögunnar. Ferðin tekur um 30 mín.